Trendnet sagði frá því á vordögum að von væri á nýju samstarfi við hátískuna hjá H&M.
Nú styttist óðfluga í að hönnunarsamstarfið fari í sölu í tilefni þess frumsýnir H&M allar lookbook myndirnar, bæði fyrir dömu- og herralínuna.
Myndirnar eru teknar á heimili Giambattista Valli í Róm, myndirnar tók ljósmyndarinn Kyle Weeks og stílisering var í höndum Giovanna Battaglia Engelbert. Fyrirsæturnar sem sátu fyrir á myndunum eru meðal annars Oslo Grace, Leslye Houenou, Mara Kasanpawiro, Kohei Takabatake, Luka Isaac og Tom Rey.
Giambattista Valli x H&M fer í sölu um alla heim í völdum verslunum þann 7. nóvember næstkomandi þar á meðal í H&M Smáralind kl. 11:00.
Það hlakkar í okkur!
Við elskum að kaupa hátísku á viðráðanlegu verði.
//
TRENDNET
Skrifa Innlegg