fbpx

TRENDNÝTT

66°Norður í samstarf við SOS barnaþorpin

FÓLKKYNNING

Það er ekki bara Helgi okkar Ómarsson sem vinnur góðverk fyrir jólin, sjá: HÉR

Velgjörðarsendiherra SOS barnaþorpanna sem betur er þekktur sem fótboltamaður og fyrirsæta, Rúrik Gíslason hefur ásamt 66°Norður hannað góðgerðabol. Bolurinn fór í sölu í dag og mun allur ágóðinn renna til SOS barnaþorpanna. Vel gert!

SOS barnaþorpin veitir munaðarlausum og yfirgefnum börnum staðgengil fyrir þá fjölskyldu sem þau hafa misst. Samtökin starfa í 136 löndum og reka 559 barnaþorp út um allan heim. Samtökin starfa óháð stjórnmálum og trúarbrögðum. Þau ná til ríflega milljón barna, ungmenna og fullorðinna í gegnum meira en 2,300 verkefni. SOS barnaþorpin eru stærstu óháðu hjálparsamtök heims sem einblína á börn án foreldraumsjár og ósjálfbjarga barnafjölskyldur.

„SOS barnaþorpin á Íslandi vinna frábært starf og ég er svo heppinn að fá að styðja við þeirra öfluga starf. Þegar ég gerðist velgjörðarsendiherra fór ég strax að hugsa hvað ég gæti gert til að vekja athygli á samtökunum og hvernig hægt væri að styðja þau fjárhagslega. Þar sem ég hef mikinn áhuga á tísku datt mér í hug að það væri gaman að hanna bol og selja til styrktar samtökunum. Ég vissi að þetta yrði flókið ferli og sá að ég væri ekki að fara að gera þetta  einn. Ég hafði því samband við 66°Norður sem tóku mjög vel í hugmyndina og vildu hjálpa mér að framleiða bolinn. Markmiðin voru skýr við vildum að sjálfsögðu hanna flottan og vandaðan bol sem fólk myndi vera stolt að klæðast í. Það er virkilega ánægjulegt að sjá þessa hugmynd verða að veruleika og það líka á þessum árstíma, rétt fyrir jólin,“  segir Rúrik Gíslason.

„Þetta verkefni er alveg í anda 66°Norður og ánægjulegt að vinna að því með Rúrik og fulltrúum SOS barnaþorpa. Í þessari vegferð höfum við fengið að læra um þeirra frábæra starf en auk barnaþorpanna þá reka samtökin fjölda leikskóla, grunnskóla, verknámsskóla og heilsugæslustöðva auk þess að sinna neyðaraðstoð. Það er ánægjulegt að geta lagt þeirra góða starfi lið á þennan hátt, “ segir Fannar Páll Aðalsteinsson, markaðsstjóri 66°Norður.

„SOS Barnaþorpin á Íslandi fagna samstarfinu við Rúrik og 66°Norður og erum mjög þakklát enda ljóst að sala á bolnum mun hjálpa okkur að bæta líf barna sem mest þurfa á hjálp að halda. Við erum afar sátt við útkomuna og ljóst að fjöldi fólks hefur lagt metnað sinn í hönnun og framleiðslu á bolnum. Á þeim 70 árum sem samtökin hafa hjálpað börnum hafa samtökin haft jákvæð áhrif á um 13 milljónir einstaklinga um allan heim. Bolurinn er ekki bara vandaður og flottur, heldur er hann yfirlýsing þess sem honum klæðist að viðkomandi vilji gera heiminn betri fyrir munaðarlaus og yfirgefin born,“ segir Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS barnaþorpanna á Íslandi.

Bolurinn fæst: HÉR

//
TRENDNET

HEITT SÚKKULAÐI MEÐ SJÖSTRAND

Skrifa Innlegg