Jeei þeir eru mínir – Vagabond Dion Boot. Ég bloggaði um daginn um þá og vissi ekki að þeir væru væntanlegir til landsins en ég sá þá fyrir helgi í Kaupfélaginu þegar ég var í pásu í vinnunni. Mér finnst teygjan gera svo mikið fyrir þessa skó en þeir væru held ég ekki mjög spennandi án hennar, bara venjulegir boots. Ég á eftir að nota þá mikið í vetur.
Vagabond er eitt uppáhalds skómerkið mitt – oftast mega flott snið á skónum, endingin mjög góð og það besta er að þeir eru svo þægilegir. Ég er ennþá að nota Vagabond skó sem ég keypti fyrir tveimur árum og þeir hafa verið notaðir mjögmjög mikið og það sést ekki mikið á þeim.
Fást í Kaupfélaginu – 24.990kr!
//Irena
Skrifa Innlegg