Maja Wyh er bloggari frá Þýskalandi.
Ég var búin að sjá nokkrar myndir af henni hér og þar á netinu áður en ég komst að því hver hún er en stíllinn hennar er einstakur. Hún klæðir sig persónulega og er ekki mikið að grípa í einhver tímabundin trend, heldur bara það sem henni finnst fínt. Stílinn er fjölbreyttur en hún klæðist oftast oversized fötum í tomboy/boho stíl. Töffari er gott orð yfir þessa stelpu. Ég held mig langi í allar flíkurnar sem hún á, eða svona næstum – en ég er þó ekki alltaf sammála skóvalinu hjá henni.
Mega tískugyðja!
Fínn innblástur fyrir komandi haust. Ég held að ég þurfi að fara að endurskoða minn fataskáp aðeins og selja/gefa – það er must svona öðru hverju.
Fyrir áhugasama er hægt að skoða bloggið hennar HÉR og instagramið er @majawyh.
//Irena
Skrifa Innlegg