fbpx

Noland X Carhartt WIP

Hæ frá einni þreyttri en samt mjög ánægðri!

Þessi vika er búin að vera frekar þétt hjá mér en kærastinn minn átti afmæli og svo vorum við í Noland að fá nýtt merki í búðina – Carhartt WIP. Síðustu dagar eru búnir að fara í að setja upp innréttingar, taka upp vörur og loksins í dag varð allt reddí. Þetta eru svo mega flottar vörur, gæðaefni og áralöng reynsla í merkinu. Við fengum bara strákaföt núna en munum líklegast verða með einhver stelpuföt seinna meir. Það stoppaði mig þó ekki í að næla mér í einn eða tvo boli – þeir eru bara flottari þegar þeir eru loose.

Ég mæli allavegana með því að allir kíki á mig í heimsókn á næstu dögum og skoði nýtt fínt!

10695170_10152780222216204_793655741_nHúfa: KR3W-Noland // Peysa: Spúútnik // Buxur: Monki // Skór: Kolaportið

10694920_10152780222211204_1699269528_nMega nice!

Endilega fylgist með @nolandrvk á Instagram!

//Irena

 

ANTONÍA

Skrifa Innlegg