fbpx

MITT AIRWAVES

ATBURÐIR

Þá er Iceland Airwaves á enda! Þessi helgi er ein af mínum uppáhalds á árinu og ég er búin að fara síðustu 3ár.

Helgin mín heppnaðist vel, ég sá nóg af fínum hljómsveitum en það sem stóð uppúr hjá mér af böndum sem ég hef aldrei séð áður var Klangkarussell, Caribou, Flaming Lips og Phox held ég. Hátíðin er alltaf að verða stærri og stærri og fleiri erlendir ferðamenn sækja hana heim. Eitt af því skemmtilegasta við hátíðina eru mismunandi gestir en fólk af öllum toga mætir og hlustar á tónlist sem það fílar! Það er líka gaman að skoða tískuna sem fylgir hátíðinni. Ég tók nokkrar myndir en síminn minn á það til að vera batteríslaus eginlega alltaf. Hér eru allavegana nokkar // ath. ekki í röð –
10805381_10152907780531204_1054018252_n

Ég og Vaka að enda gott kvöld á Dolly!
10751850_10152907780536204_1619039728_n

Við Karin héldum fatamarkað ásamt nokkrum stelpum á Laugardaginn, takk fyrri komuna þið sem mættuð! P.s. þessir eru ennþá til í 38 hjá vinkonu minni!

10806924_10152907780526204_1109658278_nGramsaði aðeins og fann þennann jakka niðrí vinnu!

10805125_10152907780516204_1674043640_n

Young Karin í Þjóðleikhúskjallarnum! Karin er í mega pallíettutopp úr Spúútnik og Kimono úr Aftur.

10807808_10152911513016204_1918090747_n

Sunnudagsþreytan að segja til sín á Flaming Lips.

10806957_10152907780031204_1565253780_nHrafnhildur var í fínum pels.
10748979_10152907780041204_757456272_n

Flaming Lips – mega show! Held ég hafi aldrei séð svona mikið að gerast á sviði á tónleikum.

10806894_10152907780046204_123838047_n

Partí!

10744869_10152907780021204_1565019309_n

Löng röð á The Knife!! Á tímapunkti náði hún þvert yfir Hörpu.
10811472_10152907780026204_2090072134_n

Logi // Young Karin í Þjóðleikhúskjallarnum.

10751621_10152907793181204_802027316_n

Píur á Klangkarussel – geðveikt!
10807936_10152907793196204_1244291475_n

Partí!

10578927_10152907793191204_1138607073_n

Ætlaði að ná mynd af Klangkarussel, en þetta er næs.

10811519_10152907793186204_2141412309_nThe Knife! Mjög flott en bjóst við meiri tónleikum og minna dansshowi.

10808380_10152907780591204_108738052_nÉg og Haukur á Flaming Lips! Ég er í jakka úr Episode og með arabatrefil frá Portúgal.

Kannski ekki margar myndir – en mynda ágætlega stemminguna. Er strax byrjuð að hlakka til 2015, næst á dagskrá er Sónar í febrúar, AK-X í apríl, Hróaskelda í júní og svo Airwaves í nóvemeber eftir ár. Þetta er allavegana mitt plan!

Takk fyrir mig Airwaves!

//Irena

FKA TWIGS

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

2 Skilaboð

  1. Lilja Guðrún

    13. November 2014

    Hvað kosta skórnir?

    • Sveinsdætur

      15. November 2014

      Skal tékka á því!