NR°1
Þessar tvær eru frekar nauðsynlegar í veturinn hérlendis. Þessi efri var keypt í Nostalgíu á útsölu í vikunni en þessa neðri keypti ég í vintage búð í London í fyrra. Þær eru mismunandi í sniðinu en ég fýla þær báðar mjög vel.
Það er bara svo vont veður og kalt að mig langar að vera helst í sæng allann daginn – en fyrst það er ekki hægt er fínt að eiga flíkur til þess að geta klætt sig vel. Ég er reyndar oftast ekki hrifin af útsölum, en það er gaman þegar maður finnur einhverja eigulega hluti inni á milli og það skemmir heldur ekki fyrir ef þeir eru one of a kind!
//Irena
Skrifa Innlegg