FÖSTUDAGUR: Það verður Happy Hour í Spúútnik á Laugavegi í dag föstudag. Þau voru að taka upp nýjar vörur og léttar veitingar frá 17-19!
1. Komdu og taktu mynd af draumaflíkinni.
2. Póstaðu og hashtaggaðu #spuutnikstyle
3. Sýndu okkur myndina á kassanum og þú færð 10-20% afslátt af flíkinni!
Kíkið í heimsókn!
LAUGARDAGUR:
Vorsýning Myndlistaskólans í Reykjavík verður opnuð kl. 14 laugardaginn 9. maí á jarðhæð JL hússins, Hringbraut 121 (áður verslunarrými Nóatúns) en Myndlistaskólinn er til húsa á 2. og 3. hæð í sama húsi.
Á sýningunni verða verk eftir nemendur í sjónlistadeild og diplómanámi í keramik, teikningu og textíl. Sýningin verður opin 14 -17 á opnunardaginn en 13 – 18 aðra daga. Henni lýkur sunnudaginn 17. maí.
Sálusysturnar Sura og Sunna Ben eða SunSura verða á Prikinu – laugardaginn 9.maí. Þær eru tryllt sætar og tryllt skemmtilegar og spila líka tryllta tónlist. Fyrir þá sem ætla að dansa mælum við með þessum!!
Góða helgi!
//Sveinsdætur
Skrifa Innlegg