Antonía vinkona mín er algjör snillingur þegar kemur að ljósmyndun. Hún byrjaði að taka myndir fyrir fjórum árum, þegar hún var aðeins 14 ára gömul og er með einstaklega næmt auga fyrir fallegum hlutum. Antonía sér ekki aðeins um það að taka myndirnar heldur stílíserar hún og farðar líka. Mjög sjarmerandi stelpa og finnst mér persónuleikinn hennar endurspeglast í myndunum. Ég heillast alltaf jafn mikið að myndunum hennar.
-
Þið getið séð fleiri myndir eftir Antoníu á blogginu hennar hér.
Hæfileikarík xx
//Karin
Skrifa Innlegg