String lights – House Doctor
”Frestunarárátta,, –Mikið er það hundleiðinlegt fyrirbæri! Ég glími við þessa áráttu líkt og margir aðrir og er meira að segja farin að hallast á það að ástandið sé verra en ég geri mér grein fyrir, dæs. En þannig er mál með vexti að við hjónakornin erum með besefans frestunaráráttu yfir hlutum sem þarf að græja í kringum heimilið okkar. Við erum til dæmis búin að vera á leiðinni að fá okkur Muuto Dots snaga í cirka tvö ár, eða síðan við fluttum inn í þetta blessaða danska hús. Reyndar höfum við alltaf verið treg við að hengja upp hluti sökum þess að við vitum ekki hversu lengi við stöldrum við á hverjum áfangastað.. að búa með óhandlögnum manni er líka atriði útaf fyrir sig. En nóg um kvart&kvein(afsakarnir sko, áráttan þið vitið..) Muuto Dots eru nefnilega svo gífurlega skemmtilegir, maður getur leikið sér endalaust með þessa snaga. Annað sem mig hefur lengi langað að eignast er svona ljósasería sem getur lífgað rækilega upp á annars leiðinlegt rými. Á vappinu mínu á pinterest tók ég svo eftir því hvað þetta tekur sig vel út sem combo, endalaust af sniðugum og skemmtilegum hugmyndum. Okkur vantar einmitt nauðsynlega eitthvað fyrir ofan rúmgaflinn okkar.. ætli við komum þessari snilldar hugmynd í verk ?!
..
I can’t stand how things never gets done around this household of ours, ”procrastination,, -I guess is the term, and a very common condition I reckon. Living with a tad more handier man would also come in handy sometime if you know what I mean. The thing is we’ve been living in this Danish house for two years now and barely got any frames up on the walls. Although it is rather difficult going full force in decoration not knowing how long until you have to pack up and move again. These Muuto Dots hooks has been on our To-Do list ever since we became Denmark residents and after 2y, still no dots to be found. I just love how you can mix&match these, endless possibilities really. Another thing that I’ve been wanting to get is string lights which can make a dull corner bright up in a sec. Was browsing thru pinterest and saw the two combo, thought it looked brilliant together, many great ideas. In fact we really need a little ”umph” above our bed! Could this DIY become a reality ?!
Pics from Pinterest
PATTRA
Skrifa Innlegg