fbpx

Pattra S.

TAKK

beautyInspiration of the dayJ'ADORE



Ó VÁÁÁ. Mikið var gaman að lesa yfir kommentin frá ykkur elsku lesendur..  ég er sennilega búin að lesa yfir þau ca 100 sinnum, engar ýkjur. Það kemur örugglega ekki á óvart en það var átakanlegt að velja eitt komment -best væri ef ég gæti gefið ykkur öllum! En nokkur komment gripu mig aðeins meira en önnur og á endanum fór ég bara eftir hjarta mínu.

”Þetta verður erfið keppni, en ég legg alveg í hana :)

Til lukku með daginn ykkar. Fyrst þegar þið fóruð í loftið leyst mér ekkert á þetta, fannst bara fínt að fylgjast með ykkur nokkrum á ykkar eigin bloggum… en í dag er ég sko algjörlega komin yfir þá fýlu og þetta er eitt af uppáhalds netsíðunum mínum :),,

Til hamingju Rut Rúnarsdóttir! Ég er búin að senda þér tölvupóst en þú hefur eignast 10.000 kr gjafabréf frá Nikeverslun.is og 3 glæsilega Burt’s Bees Tinted lip balm sem er mitt uppáhalds. Það borgar sig svo sannarlega að reyna á hlutina þrátt fyrir að þeir geta oft á tíðum verið erfiðir og hreinskilni er ávallt vel séð, sérstaklega þegar þau eru uppbyggileg.

Það væri kærkomið að fá að heyra oftar í ykkur, gleður mig svo mikið. TAKK enn og aftur fyrir að kíkja í heimsókn

Kærleikur X

PATTRA

FATAMARKAÐUR DAGSINS

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

9 Skilaboð

  1. Svart á Hvítu

    11. August 2013

    Uppáhaldskommentið mitt líka!:) Er semí abbó yfir þessum vinning, langar sjálfri sjúúúklega mikið í nýtt NIKE!

    • Pattra's

      11. August 2013

      Það er allt svo fallegt í Nike og ég er dolfallinn fyrir Burt’s!
      Rut er alveg heppin dama á þessu fína sunnudagskvöldi :)

  2. Rut R.

    11. August 2013

    naujhaujhaujjjj…. takk svo ofsalega mikið fyrir mig!! :)
    Er NÝbúin að kynnast Burt’s og er ekkert smá hrifin af þessu merki. Og að sjálfsögðu búin að nota Nike frá því ég var krakki :)

    TAKK takk takk Ég er sko ein kát táta!! :)

    • Pattra's

      11. August 2013

      Það er svo gaman að gleðja:)
      Njóttu vel takk fyrir að kíkja í heimsókn á okkur!!

      X

  3. Hugrún Sif

    11. August 2013

    Til hamingju Rut.

    • Pattra's

      11. August 2013

      Takk æðislega Hugrún fyrir að skilja eftir spor!

      • Hugrún Sif

        12. August 2013

        Takk sömuleiðis kærlega fyrir mig :) :)