fbpx

Pattra S.

SHOPPING @ZARA

J'ADORENew closet member

6394041251_2_5_16394041251_2_4_1

 HOLA! Ég kom heim frá Barcelona um síðustu helgi og er búin að vera vinna upp svefninn síðan þá. Fékk stjarnfræðilega pirrandi fjörfisk í vinstra augað úti á spáni sem stóð yfir í rúmlega viku en eftir góðan svefn hef ég verið laus við hann í nokkra daga núna. Hefði verið skondið atriði að enda hjá lækni með fjörfisk en það er nefnilega mælt með að maður leiti ráða hjá fagaðilum ef fjörfiskur varir í meira en viku.

En Barcelona var jafn skemmtileg nú og fyrir 4 árum, borg sem býður virkilega uppá allt –MUY BIEN. Það var auðvitað ekki hægt að heimsækja Spán án þess að asnast inn í ZARA en þessar fínu marmara buxur duttu ofan í innkaupapokann hjá mér, þær verða frábærar í vor/sumar. Eitt sem mér fannst athyglisvert er að ég borgaði 39,- evrur fyrir þær úti en kíkti að gamni á danska heimasíðu þeirra og sá að þær kosta 459,-dkk hér heima sem samsvarar 61,- evru. Svakalegur munur finnst mér, undarlegt nokk.. hvað ætli þær kosti heima á Íslandi?

..

HOLA! I came home from Barcelona last weekend and have been catching up with my sleep more or less ever since. Got this massively annoying twitch on my left eye that lasted for more than a week but after a good rest has it been gone for couple of days now. Barcelona was as delightful now as it was 4 years ago, a city that really has everything to offer –MUY BIEN. It’s of course impossible to visit Spain without wandering into ZARA but these fine marble trousers fell into my shopping bag, perfect for spring/summer.

PATTRA

LAUGARDAGSLÚKKIÐ

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

8 Skilaboð

  1. Hafdís

    20. February 2014

    Ég bý einmitt á Spáni og er einmitt búin að taka eftir því að Zara er mun ódýrari hérna. Hélt að það væri svipað eða sama verða alls staðar.

  2. Kolbrún Anna

    21. February 2014

    Þær eru ekki komnar í búðir hér síðast þegar ég athugaði.

  3. Kristín María

    21. February 2014

    Ef þú ert einhverstaðar annarsstaðar á evrusvæðinu en Spáni þá borgarðu talsvert meira í Zöru, bjó einu sinni í Þýskalandi og tók eftir á verðmiðanum að skór sem ég keypri voru a.m.k. 30 evrum ódýrari á Spáni. En þetta er auðvitað upprunaland Zöru svo mér finnst það ekkert óeðlilegt að þar sé merkið á hagstæðara verði, sérstaklega vegna þess að kaupmátturinn þar er minni en í mörgum öðrum Evrópulöndum.

    • Pattra S.

      24. February 2014

      Takk fyrir þitt innlegg Kristín. Allt hárrétt sem þú segir, gerði mér fulla grein fyrir því að það væri hagstæðast að versla í ZARA á Spáni en hef bara aldrei tekið eftir því að munurinn er svona mikill. Svo er danska krónan líka fremur sterk á móti evruna sem hafði auðvitað einnig áhrif.

  4. Harpa

    23. February 2014

    ég sá Kápu um jólin sem kostaði 45 þús á Íslandi 25 þús á spáni haha

    • Pattra S.

      24. February 2014

      Vó.. það er ansi mikill munur!!