fbpx

Pattra S.

KATTARKONA Á GAMLÁRS

My closet

Gleðilegt 2 0 1 4 öllsömul!! Ég vona innilega að þið hafið haft það náðugt yfir hátíðarnar og notið með ykkar ástkæru, sjálf gerði ég nákvæmlega það áður en við flugum af landi brott daginn fyrir gamlárs. Nú skrifa ég frá Stokkhólmi þar sem við erum búin að eiga snilldar daga. Annars virðist ég hafa fengið áframhaldandi bloggógeð á hæsta level og opnaði nánast ekkert tölvuna undanfarnar vikur. Ég hlakka til að komast aftur í bloggrútínu þegar ég lendi heima í DK en fyrsta færsla ársins verður outift póstur af gamlárs þar sem ég brá mér í kattarkonu búning, eða svona næstum því!

SONY DSCSONY DSCSONY DSCSONY DSC

Ég var ekki búin að finna mér gamlársdress þann 31 en var svo sem ekkert að stressa mig á því. En á röltinu um bæinn rakst ég á einstakan pallíettu samfesting sem voru bara til örfá eintök af og ákvað að prófa að gamni. Það endaði með því að hann var eins og sniðaður á mig þannig að ég gat ekki annað en keypt hann og klæddist honum um kvöldið, frá Valerie Butiken. Vonandi fæ ég að klæðast honum aftur sem fyrst, það er nefnilega ansi skemmtilegt að dansa í honum!

Blazer&Frakki-Zara / Hælar-BCBG / Hálsmen-Kúltur

..

Happy 2 0 1 4 !! I hope all of you have had a wonderful time with your loved ones over the holidays. Iceland went by madly fast and I barely turned on the computer last couple of weeks. Now we’re sitting in a hotel room in Stockholm where we have spent this past week, what an amazing city. We had a blast with couple of friends on NYE where I decided to dress as the catwoman. Found this fun sequin jumpsuit on the 31st from a unique swedish Valerie Butiken and hopefully I’ll get the chance to dance in it again soon!

PATTRA

SNJÓVÍK

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Erla Vinsý.

    3. January 2014

    VÁVÁVÁ! Fer þér ótrúlega vel..

  2. Elísabet Gunn

    3. January 2014

    Með etta!
    Gleðilegt nýtt ár – Takk fyrir gömlu :*

  3. Sara Lind

    3. January 2014

    Nei okey, jeremías hvað þú ert flott í þessu !! ;) Las þetta í íþróttagallanum mínum og dó smá !

  4. Hekla

    4. January 2014

    þú ert fáránlega flott

  5. Bára

    15. January 2014

    Ó VÁ! hann er guðdómlegur