fbpx

Pattra S.

BLOGGÁRIÐ 2016

IcelandInspiration of the dayTraveling

GLEÐILEGT nýtt, tveggja vikna gamalt ár kæru lesendur og takk kærlega fyrir að kíkja hingað í heimsókn árið 2015. Það hefur eflaust ekki verið sérstaklega gaman að fylgjast með blogginu mínu í fyrra, langt í frá! Ég hef verið arfaslök við þetta, bloggrútínan gjörsamlega flaug út um gluggann og lengi vel var ég ekki svo viss um ég gæti tekið upp þráðinn aftur. En nú þýðir ekkert annað en að gera þetta almennilega eða hreinlega leggja þetta niður fyrir fullt og allt. Það er akkúrat 6 ár síðan ég startaði þessu bloggi og ég er handviss um að ég myndi sjá eftir því að leggja bloggskóna á hilluna á svona óeftirminnilegan hátt. JÁ, ég á sko nóg inni!

Ég og Elmar byrjuðum nýja árið á að taka spontant road trip í Hvalfjörðinn, ótrúlegt að svona ævintýralegur staður sé einungis 40min í burtu frá Reykjavík. Við tókum nokkrar skemmtilegar myndir sem mér fannst tilvalið að deila mér ykkur í fyrstu færslu ársins.

DSCF2233DSCF2190

Hversu fallegir

DSCF2235DSCF2207DSCF2196DSCF2231

Þessar hestamyndir og þetta umhverfi er í miklu uppáhaldi

DSCF2245DSCF2243DSCF2250

Eins og málverk/Elmar fínn í Alexander Wang jakkanum sínum sem hann fékk frá mér í jólagjöf

DSCF2260DSCF2483DSCF2297DSCF2495DSCF2463DSCF2409

Ég er svo skotin í NIKE settinu mínu

DSCF2444DSCF2410DSCF2461

Ég vona að þið fylgið mér inn í 2016

..

New year, brand new blog! Thank you for following me all these years, I know my blogging was a complete let down in 2015 but now I’m determined to give this thing a 110% go! Let’s start this blog year by admiring the beautiful Icelandic nature, nothing else quite like it. Picture taken on a spontaneous road trip to Hvalfjordur, 40min outside of Reykjavik, isn’t it something?!

Kær kveðja -PATTRA

LAST MINUTE BALMAIN x H&M

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

10 Skilaboð

  1. Erla Vinsý.

    15. January 2016

    Vá en flottar myndir!
    Ég er sammála með Hvalfjörðinn, svo fallegur.
    Þetta Nike dress er rugl flott :)

    • Pattra S.

      18. January 2016

      Takk elskulega mín :* JÁ! Ekkert smá gaman að taka hringinn og dást að umhverfinu, vorum hvorug með síma sem gerði þetta ennþá skemmtilegra.

  2. Elísabet Gunnars

    15. January 2016

    Jibbý! Gleðilegt nýtt ár sömuleiðis.
    Pörfekt íslenskt blogg-upphaf með þessum fallegu myndum.

    Áfram þú! <3

    • Pattra S.

      18. January 2016

      <3<3

  3. Svart á Hvítu

    16. January 2016

    Jibbý loksins loksins:) Hlakka til að fylgjast með… þú þarna ofurskutlan þín!

    • Pattra S.

      18. January 2016

      2016 er árið! :**

  4. Eva

    16. January 2016

    hvað heitir þetta sett?

    • Pattra S.

      19. January 2016

      Búin að leita bak&fyrir á flíkunum en það stendur hvergi. Sá samt að Nike verslun(Lyngháls 13) voru með þessar buxur til sölu einhvern tímann í fyrra. Gætir ef til vill spurt fyrir hjá þeim, ég fékk þó settið mitt hér í DK fyrir u.þ.b. ári síðan. Vona að þetta hafi hjálpað eitthvað :)

  5. Anna

    16. January 2016

    Hvaða myndavél eru þið að nota?

    • Pattra S.

      19. January 2016

      FUJIFILM X30 -Svakalega ánægð með hana, mæli eindregið með að þú kíkir á hana betur ef þú ert í leit að góðri myndavél :))