Æðislegur miðausturlenskur réttur sem bragðast dásamlega. Fá hráefni sem passa ótrúlega vel saman. Þessi réttur er mikið eldaður á mínu heimili og hefur slegið í gegn í matarboðum. Ég gerði lét einu sinni kjúklinginn marenerast í alveg 6 tíma og það varð töluvert betra heldur en þegar ég var með hann um eina klukkustund.
Saffran kryddið getur verið dýrt og mæli ég með að heyra í krydd og tehúsinu eða sérverslunum til að bera saman verð.
Fyrir 4-6
Hráefni
- 4 laukar, skornir í helming og síðan í þunnar sneiðar
- Safi úr 5 sítrónum
- 4 msk ólífuolía
- 1 tsk túrmerik
- 400 g grískt jógúrt
- 2 tsk salt
- 1 klípa á saffran þráðum
- 3 msk heitt vatn
- 6 kjúklingabringur, skornar í sirka 5 cm sneiðar
Aðferð
Finnið til stóra skál og setjið laukinn, sítrónusafann, ólífu olíuna, túrmerik, jógúrtið og saltið í skálina og blandið öllu vel saman. Ef þið eigið til mortel þá kremjið þið saffranþræðina í duft ef ekki kremjið það saman í lítilli skál með skeið. Hellið 3 msk af heitu vatni og látið standa í 5-10 mínútur. Bætið kjúklingnum í skálina og blandið vel við jógúrtblönduna. Hellið saffran vatninu útí og hrærið saman. Setjið plastfilmu yfir skálina og látið marinerast inní ísskáp í að lágmarki 1 klst, því lengur því betra. Þegar kjúklingurinn hefur marinerast settu hann þá í eldfast mót með bökunarpappír undir svo að laukurinn brenni ekki við botninn. Bakaðu kjúklinginn við 200° í 18-20 mínútur. Gott er að bera réttinn fram með grjónum, salati eða bökuðum pítubrauðum til að rífa niður og dýfa í sósuna.
Þennan rétt gerði ég skref fyrir skref á instagram hjá mér sem þú getur fundið myndbandið af ef þú ert í vandræðum undir easy chisken.
@martaarun
Skrifa Innlegg