Nú fer að styttast heldur betur í jólin og langar mig að deila með ykkur jólagjafalista í samstarfi við Maí Verslun. Ég hef verslað jólagjafir í Maí verslun í mörg ár og er þetta samstarf heldur betur fullkomið fyrir mig. Í Maí verslun finnuru vandaðar vörur ásamt því að fá frábæra og persónulega þjónustu. Eftirfarandi hlutir eru þeir sem ég mæli með fyrir jólagjafir í ár!
- Eco By Sonya – Face Tan Water – þetta andlitsvatn er algjör snilld og hefur unnið til margra verðlauna. Hef notað það í mörg ár og þá sérstaklega yfir veturinn til að fríska aðeins uppá húðina!
- Teatox tvenna – fullkomin gjöf fyrir manneskjuna sem á allt!
- Ilmkerti frá Urð – ilmkertin frá Urð eru algjört æði, mín uppáhalds er Vetur og nýja jólakertið!
- The Ordinary gjafasett – frábært þrenna frá vinsæla merkinu The Ordinary!
- Bio Effect dagkrem – milt og gott dagkrem frá íslenska vörumerkinu Bio Effect
- Glacial flaska – falleg vatnsflaska sem heldur vatninu köldu í allt af 24 klukkutíma
- Riv salt – gríðalega vinsæl vara sem kemur sem vel út í eldhúsi hjá flestum
- Niod maski – minn uppáhalds maski þessa stundina.
- Skyn Iceland Eye Gels – algjör lúxus að eiga og virkar einsog koffín skot fyrir augun!
Takk fyrir að lesa og gangi ykkur vel í jólagjafakaupunum!
Hildur Sif Hauks | IG: hildursifhauks
Skrifa Innlegg