fbpx

VEGAN JÓLAÍS MEÐ HESLIHNETUSÚKKULAÐI: MYNDBAND

EFTIRRÉTTIR & KÖKURSAMSTARFUPPSKRIFTAMYNDBÖNDUPPSKRIFTIR

Í samstarfi við Innnes útbjó ég þennan bragðgóða og einfalda vegan jólaís. Hann inniheldur Oatly vanillusósu, Oatly rjóma og hrísgrjónasúkkulaði með heslihnetufyllingu frá Rapunzel. Vá hvað þessi blanda er góð og hátíðleg. Ég toppa svo ísinn með súkkulaðisósu úr dökku súkkulaðiáleggi frá Rapunzel ásamt ferskum berjum sem gerir hann extra hátíðlegan og fallegan.

2 fernur Oatly vanillusósa
1 ferna Oatly rjómi
2 plötur hrísgrjónasúkkulaði með heslihnetufyllingui frá Rapunzel
⅔ krukka dökkt súkkulaðiálegg frá Rapunzel
Fersk ber eftir smekk

Aðferð

  1. Þeytið vanillusósuna þar til hún verður þykk og létt í sér. Takið hana til hliðar.
  2. Þeytið 130 ml af rjómanum í annarri skál.
  3. Blandið rjómanum og vanillusósunni varlega saman með sleif.
  4. Smátt skerið súkkulaði og blandið varlega saman við vanillublönduna.
  5. Þekjið 25×12 cm form með plastfilmu og hellið blöndunni í það. Frystið í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt.
  6. Bræðið súkkulaðiáleggið ásamt 50-100 ml Oatly rjóma á vægum hita. Blandið vel saman og kælið. 
  7. Takið ísinn úr forminu með því að hvolfa honum varlega á fallegan bakka. Takið plastfilmuna af ísnum og hellið súkkulaðisósunni yfir eftir smekk.
  8. Skreytið með berjum og berið fram með restinni af sósunni. Njótið.

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ!♥

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

KRÖNSÍ DAIM SMÁKÖKUR: UPPSKRIFTAMYNDBAND

Skrifa Innlegg