fbpx

KRÖNSÍ DAIM SMÁKÖKUR: UPPSKRIFTAMYNDBAND

EFTIRRÉTTIR & KÖKURSAMSTARFUPPSKRIFTAMYNDBÖNDUPPSKRIFTIR

Hvað er betra en Daim súkkulaði í smákökur? Þessar eru með þeim betri en ég útbjó þær í samstarfi við Innnes. Mjúkar að innan og stökkar að utan. Daim súkkulaðið gerir kökurnar bæði ljúfar og krönsí. Ég hvet ykkur til að prófa þessar á aðventunni.

Uppskrift gerir 20 smákökur
200 g smjörvið stofuhita
 150 g púðursykur
 50 g sykur
 2 egg
 1 tsk vanilludropar
 300 g hveiti
 1 tsk matarsódi
 0,25 tsk salt
 4 dl Daim kúlur
 1 dl saxað Milka súkkulaði
Toppa með
 Milka súkkulaði
 Daim kúlur

Aðferð

  1. Hrærið saman í hrærivél smjör, púðursykur og sykur í nokkrar mínútur.
  2. Bætið út í eggi og vanilludropum og hrærið saman.
  3. Bætið hveiti, matarsóda, salti og hærið vel saman.
  4. Blandið Daim kúlum saman við með skeið. Gott að kæla deigið í 30-60 mínútur.
  5. Notið matskeið til að útbúa kúlur úr deiginu og notið hendurnar til að rúlla í kúlur.
  6. Dreifið þeim á bökunarplötu þakta bökunarpappír og passið að hafa bil á milli þeirra.
  7. Bakið í 8-10 mínútur við 180°C.
  8. Skreytið með bræddu Milka súkkulaði og söxuðum Daim kúlum. Njótið!

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ ÞRIÐJA Í AÐVENTU!♥

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

HELGARKOKTEILLINN: JÓLA MÍMÓSA

Skrifa Innlegg