Hver elskar ekki klassísku og góðu sjónvarpskökuna a.k.a. Lazy daisy? Í samstarfi við Kötlu ætla ég að deila með ykkur uppskriftinni að þessari dásamlegu köku. Þessi kaka er í uppáhaldi hjá fjölskyldunni minni og ég er oft beðin um að gera þessa. Einnig er hún mín uppáhalds en ég hef þróað þessa uppskrift í gegnum tíðina. Í henni er mikið af kókoskaramellu en mér finnst hún aðalatriðið. Kakan er dásamlega mjúk, karamellan stökk og er hún afar ljúffeng með ísköldu mjólkurglasi eða góðum kaffibolla.
2 egg
150 g sykur
1 tsk vanilludropar frá Kötlu
125 g hveiti
1 tsk lyftiduft
30 g brætt smjör
80 ml mjólk
Kókoskaramella
140 g smjör
120 g kókos
130 g púðursykur frá Kötlu
1 dl rjómi
Aðferð
- Þeytið egg og sykur þar til blandan verður ljós og létt.
- Sigtið saman við hveiti og lyfitdufti og hrærið varlega saman.
- Hellið vanilludropum, smjörinu og mjólkinni út í og blandið varlega við.
- Hellið deiginu í 22-26 cm smurt kökuform. Mér finnst þægilegt að setja smjörpappír í botninn.
- Bakið í 15-20 mínútur við 180°C.
- Á meðan kakan bakast þá er gott að útbúa karamelluna. Blandið smjöri, kókosmjöli, púðursykri og rjóma í pott og hitið í ca. 5-8 mínútur.
- Dreifið karamellunni á kökuna og bakið í aðrar 12-15 mínútur. Mjög gott að bera kökuna fram með þeyttum rjóma.
Mér finnst alltaf gaman að heyra frá ykkur ef að þið prófið! :)
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU!
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg