fbpx

SÆTKARTÖFLU- OG KJÚKLINGABORGARI

AÐALRÉTTIRUPPSKRIFTIR

Sætar kartöflur og kjúklingur passa sérlega vel saman. Þessi réttur er bæði mjög bragðgóður og í hollari kantinum. Ég nota sætar kartöflur í staðinn fyrir brauð og fylli með kjúklingi, fetaosti, avókadó, salati, tómatsneiðum, spírum og ljúffengri sósu. Þetta er einfalt og þægilegt að útbúa og tekur um 30 mínútur. Það er þægilegt að undirbúa meðlætið á meðan kjúklingurinn og sætu kartöflurnar bakast í ofninum.  

Fyrir 2
1 stór sæt kartafla
Ólífuolía
2 kjúklingabringur
Salt og pipar
Fajita krydd
1 stórt avókadó, stappað
Salat
Fetakubbur
Tómatur, skorinn í sneiðar
Alfa alfa spírur

Sósa
3 msk majónes
1-2 tsk sambal oelek

Aðferð

  1. Skerið kjúklingabringurnar í tvennt svo úr verði fjórar sneiðar úr tveimur bringum. Berið ólífuolíu á þær og kryddið með salti, pipar og fajita kryddblöndu. Bakið í ofni við 190°C í 15 mínútur.
  2. Stappið fetakubbinn (magn eftir smekk) og dreifið yfir kjúklinginn. Setjið kjúklinginn aftur inn í ofn og bakið í ca. 10-15 mínútur eða þar til hann er orðinn fulleldaður.
  3. Skerið sætu kartöfluna í átta sneiðar. Penslið olíu á þær og kryddið með salti og pipar.
  4. Leggið þær á ofnplötu sem er þakin bökunarpappír og bakið í 20 mínútur á 190°C.
  5. Takið kartöflusneiðarnar úr ofninum, smyrjið fjórar sneiðar með avocado og dreifið salati yfir.
  6. Setjið kjúklinginn ofan á, tómatsneið, sósu, spírur og í lokin leggið sneið af sætri kartöflu ofan á. Mæli með að gera tvo borgara á mann.

Mér finnst alltaf gaman að heyra frá ykkur ef að þið prófið! ;)

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU OG NJÓTIÐ DAGSINS!♥

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

HELGIN: BARNAAFMÆLI

Skrifa Innlegg