Geggjuð marengsbomba með Oreo crumbs, Daim og nóg af ferskum berjum sem ég útbjó í samstarfi við Innnes. Oreo crumbs er algjör snilld í bakstur og gerir marengsinn extra gómsætan. Ég bar þessa köku fram í barnaafmæli um helgina og vá hvað hún var ljúffeng. Svona tertur eru alltaf vinsælar í veislum og ég mæli mikið með þessari.
Marengs
4 eggjahvítur
200 g sykur
2 dl Oreo crumbs
Rjómafylling
4 dl rjómi
2 dl Oreo crumbs
200 g jarðaber
150 g hindber
Daim sósa
2 stk lítil Daim (56 g)
1 dl rjómi
Toppa með:
200 g jarðaber
150 g hindber
½-1 stk lítið Daim (28 g)
½-1 dl Oreo crumbs
Aðferð
- Þeytið eggin í hrærivél. Blandið sykrinum saman við í smáum skömmtum og hrærið þar til blandan verður alveg stíf.
- Blandið Oreo crumbs varlega saman við með sleif.
- Útbúið tvo hringlaga botna með því að dreifa blöndunni á tvær ofnplötur þaktar bökunarpappír.
- Bakið við 120°C í 60 mínútur og kælið.
- Skerið berin smátt og þeytið rjóma. Blandið því varlega saman ásamt Oreo crumbs.
- Setjið einn marengsbotn á kökudisk, dreifið rjómablöndunni ofan á og setjið hinn marengbotninn ofan á.
- Bræðið Daim saman við rjóma, kælið og dreifið yfir marengsinn.
- Stráið smátt söxuðum berjum, Oreo crumbs og söxuðu Daim súkkulaði yfir. Njótið vel.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg