Jarðaberja gin og tónik er ljúffengur og ferskur drykkur, jarðaberin gefa svo gott, sætt og ferskt bragð í drykkinn. Sumarlegur drykkur sem ég mæli með að þið prófið.
1 drykkur
2-3 fersk jarðaber
5 cl Martin Miller’s gin
1 cl sykursíróp
2 dl tónik
Klakar
Lime sneið
Aðferð
- Byrjið á því að merja jarðaberin og blandið þeim saman við sykursíróp.
- Hellið jarðaberjunum í gegnum sigti í hátt glas.
- Bætið við gini, tónik og hrærið varlega saman.
- Bætið klökum útí og lime sneið. Njótið.
Sykursíróp
- Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott.
- Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
- Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.
SKÁL & NJÓTIÐ! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg