Þessir sólardagar eru svo ljúfir og kalla á svalandi kokteil. Þegar ég hugsa um sumarlegan kokteil þá kemur mojito strax upp í hugann! Hér kemur uppskrift að hindberja mojito sem afar bragðgóður. Hindberin gera drykkinn svo ferskan og bragðgóðan. Mæli með að þið prófið í sólinni um helgina.
Fyrir einn
6-8 hindber
10-12 fersk myntu laufblöð
6 cl Brugal romm
2 cl safi úr lime
3 cl sykursíróp
Klakar
1-2 dl sódavatn
Aðferð
- Setjið hindber og myntu laufblöð í hátt glas og merjið.
- Hellið rommi, lime safa og sykursírópi út í.
- Fyllið glasið af muldum klökum og hellið sódavatni útí. Hrærið öllu saman og njótið.
Sykursíróp
200 g sykur
200 ml vatn
Aðferð
- Blandið saman vatn og sykur i í pott.
- Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
- Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.
SKÁL & GÓÐA HELGI ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg