Ég gerði þessa ofur gómsætu ostaídýfu í samstarfi við Innnes en hún inniheldur Philadelphia rjómaost með graslauk, sýrðan rjóma, parmigiano reggiano, jalapeno og cheddar ost! Svakalega góð og passar sérlega vel með köldum drykk og tortillaflögum í sólinni eða sem snarl á kósýkvöldi með uppáhalds þættinum ykkar. Ég mæli með að bæta við jalapeno eftir smekk, fer eftir því hversu sterkt þið viljið hafa þetta. Svo er algjör snilld að setja ídýfuna á grillið í ferðalögum, þá er gott að nota steypujárnspönnu eða annað ílát sem má fara á grill.
200 g Philadelphia rjómaostur með graslauk
1½ dl sýrður rjómi
3 dl rifinn cheddar ostur
½ dl rifinn parmigiano reggiano
1 dl smátt skorinn jalapeno (eða minna ef þið viljið ekki sterkt)
Toppa með:
35 g smör
½ dl rifinn parmigiano reggiano
⅔ dl panko raspur
Steinselja smátt skorin
Tortillaflögur með ostabragði frá Maarud
Aðferð
- Blandið saman rjómaosti, sýrðum rjóma, cheddar osti, parmigiano og jalapeno. Dreifið blöndunni í eldfast mót eða steypu járnspönnu.
- Bræðið smjör í potti, bætið parmigiano og raspi saman við og hrærið vel saman.
- Dreifið raspinum yfir ídýfuna og bakið í ofni við 190°C á blæstri í 20 mínútur eða þar til ídýfan er orðin gyllt og stökk. Það er einnig mjög gott að grilla ídýfuna.
- Dreifið steinseljunni yfir í lokin og berið fram með tortillaflögum.
NJÓTIÐ DAGSINS & VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU! :)
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg