Þessi hummus er vegan og er mjög bragðgóður. Gulrætur eru svo næringarríkar og passar vel að setja í hummus. Mæli með að þið prófið að setja hann á hrökkbrauð eða á tortillur.
1 krukka kjúklingabaunir, 240 g
4 gulrætur
1 msk tahini
6 msk ólífuolía
Safi úr 1/2 sítrónu
Salt & pipar
Cumin
Cayenne pipar
Toppað með:
Ólífuolíu
Gulrót, skorin í litla bita
Chili flögum
Salt flögum
Ferskum kóríander
Aðferð
- Skerið gulræturnar í litla bita og hrærið saman við kjúklingabaunirnar og ólífuolíu.
- Bakið í 20 mín við 180°C og takið nokkra gulrótabita frá til að toppa hummusinn með.
- Blandið öllu vel saman í matvinnsluvél (ég nota matvinnsluvélina sem fylgir töfrasprotanum mínum).
- Toppið svo með ólífuolíu, saxaðri gulrót, söxuðum kóríander, chili flögum og salti.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg