fbpx

GRILLAÐ FISKITACOS MEÐ ANANAS SALSA

AÐALRÉTTIRSAMSTARFUPPSKRIFTIR

Dásamlegt tacos með grilluðum fiski sem ég gerði í samstarfi við Krónuna þar sem öll hráefnin í uppskriftinni fást. Grillaðir þorskhnakkar í ljúfum kryddlegi, salsa með ferskum ananas, avókadó og tómötum, jalapeno sósa og litlar tortillur frá Mission. Sumarlegur, ferskur og virkilega gómsætur réttur. Það passar mjög vel að setja ferskan ananas í salsað og bera fram með fiskinum. Namminamm! Ég prófaði að hafa óáfengt te freyðivín með sem heitir Töst og fannst það virkilega svalandi og gott. Mæli með.

Fyrir 3-4 (Ég mæli með 3 litlum tortillum á mann)
500 g þorskhnakkar
Safi úr 1/2 lime
1-2 msk Krónu krydd – Ertu ekki að grænast?
1 msk ferskt kóríander
1 tsk cumin
1 msk ólífuolía
Litlar tortillur – Street taco frá Mission
Stappaður fetaostur (salatostur eftir smekk)

Ananas salsa
¼ – ½ ferskur ananas
2 avókadó
10 kokteiltómatar
1 msk kóríander
Safi úr ½ lime
Salt & pipar eftir smekk

Einföld jalapeno sósa
2 dl majónes (einnig gott að setja smá sýrðan rjóma)
1-2 msk jalapeno úr krukku
Salt & pipar

Aðferð

  1. Byrjið á því að skera fiskinn í bita eftir smekk og blandið saman í skál við safa úr lime, Krónu kryddið – Ertu ekki að grænast, cumin og ólífuolíu.
  2. Smátt skerið ananas, avókadó, kokteiltómata og kóríander. Blandið öllu saman, kreistið lime yfir og saltið og piprið.
  3. Blandið saman majónesi, smátt söxuðu jalapeno, salti og pipar eða setjið í töfrasprotann/matvinnsluvél.
  4. Dreifið fiskinum á álbakka og grillið í 10 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn. 
  5. Grillið tortillurnar á vægum hita og fyllið þær með salsanu, fiskinum og sósunni. Mmm… og njótið!;)

Mér finnst alltaf gaman að heyra frá ykkur ef að þið prófið

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU!

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

ÍSKAFFI MEÐ KÓKOSMJÓLK

Skrifa Innlegg