HI!
Við elskum að fylgjast með förðunarfræðingum og sjá mismunandi farðanir og aðferðir sem þeir nota. Hér er listi yfir þá förðunarfræðinga sem við erum að fylgja á Instagram.
Emma Chen
Ótrúlega hæfileikaríkur hárstílisti & förðunarfræðingur frá Ástralíu. Hennar signature stíll er glowy húð og beachy bronzed lúkk.
Samuel
Förðunarfræðingur stjarnanna. Kúnnahópurinn hans er til að mynda: Pia Mia, Bebe Rexha, Desi Perkins, Steph Shep. Hans signature er mött bronzy húð.
Vivis
Glowy húð og litagleði einkennir Vivis en hún er einnig mikið fyrir monochrome lúkk. Mælum með henni þegar ykkur vantar innblástur.
Ash K Holm
Einn af förðunarfræðingum Kardashian/Jenner klansins. Hennar signature er bronze húð og vel mótuð augu. Hún vinnur mikið með sína týpu af soft cut crease og eyeliner. Elskum hana!
Priscilla Ono
Priscilla er og hefur verið förðunarfræðingur Rihönnu í mörg ár. Hún er ambassador fyrir Fenty Beauty og gerir alltaf litrík og skemmtileg look. Hún hefur farðað fyrir öll þekktustu tískutímarit í heimi!
Danessa Myricks
Danessa er með ótrúlega einkennandi stíl. Hún er með next level færni og tækni í húðvinnu. Geggjað dimension í öllu sem hún gerir. Hún er með sína eigin förðunarlínu, mælum með að kíkja á hana.
Nikki Wolff
Einn eftirsóttasti förðunarfræðingur heims. Hennar signature er frískleg húð, eyeliner og fluffy augabrúnir. Nikki er með sunday tutorial á Instagram síðunni sinni þar sem hún sýnir snilli sína vikulega.
Isabelle De Vries
Glow Glow Glow. Isabelle er ekki hrædd við ljóma og liti! Hún er mikið fyrir glossy augu og er einnig með sína eigin línu af litríkum augnhárum sem hún notar oft í lookin sín.
Ariel
Ariel er frægastur fyrir að vera aðal förðunarfræðingur Kylie Jenner. Ariel er einn sá færasti í bransanum og hefur einnig farðað allar aðal skvísurnar í hollywood og búið til ótrúlega mörg förðunar ”trend”.
Merton Muaremi
Förðunarsnillingur frá Ástralíu. Hans signature eru falleg shape á augum og hann er algjör master í blautum eyeliner. Hann er líka einn eftirsóttasti brúðarförðunarfræðingur í Ástralíu.
Hrush Achemyan
Annar förðunarfræðingur sem hefur öðlast frægð sína í gegnum Kardashian fjölskylduna. Hrush er meistari í að „layera“ makeupi. Þegar þú sérð myndir af förðunum eftir hana hefðiru aldrei trúað því hversu mikið magn af farða er á andliti kúnnans.
James Molloy
Ótrúlegur listamaður! Hann er búinn að mastera allt. Húð, varir, augu, liti… you name it. Hann er eigandi og stofnandi mykitco sem er eitt besta förðunar- aukahluta vörumerki heims.
Hung Vanngo
Einn eftirsóttasti förðunarfræðingurinn í bransanum. öll súpermódel í heiminum elska hann og hefur hann farðað eftirsóttustu andlitin í bransanum. Hans signature eru augun.
Patrick Ta
Patrick er einn af risum förðunarbransans. Fullkomin húð og látlaus augu eru hans signature og hefur hann gefið okkur inspiration í mörg ár! Hann sérhæfir sig meðal annars í red carpet.
Eigið góðan sunnudag!
________
Instagram @the_hibeauty
snyrtinamskeid.is
thehibeauty.com
Skrifa Innlegg