Ég veit að það eru fleiri en ég sem elska flott æfingaföt. Ég má því til með að deila mínum nýjustu..
Flottur samfestingur frá Nike sem smellpassar við svörtu hlaupastuttbuxurnar mínar úr H&M.
Nike Strut. Ég held að þessar hafi verið til heima í Nikeverslun.is, ég keypti þó mínar á store.nike.com.
Nike pro hyperwarm seamless. Þessar eru hlýjar, halda góðum hita og henta því vel fyrir útihlaupin í vetur.
Nike gym seamless stopparnir eru by far flottustu æfingatopparnir frá NIKE. Þeir gera línurnar svo flottar og svo er hann að auki afskaplega þægilegur fyrir okkur sem höfum ekki mjög stór brjóst. Ég keypti mér einn í London og annan á store.nike.com og skora hér með á Nikeverslun.is að hefja sölu á þeim líka ;-)
Nike tech buxur. Flottar comfy og hversdags.
Nike lunarelite sky hi. Afskaplega þægilegir götuskór sem gaman er að para við síðar kápur.
Strato intermedio run performance. Stella McCartney fyrir Adidas. Klæðilegur og flottur jakki sem næstum er of flottur til að svitna í.
Og svo minni ég á Rómeo og Júlíu hálfmaraþonið í febrúar, ef einhver vill koma og hlaupa með mér hér í Verona ? :-)
Skrifa Innlegg