fbpx

MY SHOPPING BAG

BörnFötHreyfing

Það koma dagar þar sem ég tek internetrúntinn með stæl og hendi helling af dóti sem mig langar í í ósýnilegu, risa stóru og ótæmandi innkaupakerruna. Oftast gufa vörurnar svo bara upp og einhver annar fær að njóta þeirra en það á þó ekki við um þessar, í þetta skiptið.

1609684_509442779170200_1042930001_n

Screen Shot 2014-02-08 at 11.19.41

Neongult vesti og ljósgráar hlaupabuxur frá Nike. Þetta er must have ! Asos.com

2b28e4aadac58a4b4de7e8ebb40ed696

TOM FORD, Chanel, Dior eða aðrar fallegar bækur. Ég keypti mér TF á Amazon en ég hef séð að Myconceptstore.is er með glæsilegt úrval ljósmyndabóka.

Þá má einnig hafa í huga að veglegar ljósmyndabækur er dásamleg Valentínusargjöf fyrir bæði kyn. (HÆ EMIL ;-)

004_22227e75-1767-46cf-a1f9-253b452f970f-1

Þessi súper cool leður boots eru á leiðinni til okkar í pósti, einnig til ljósbleikir fyrir stelpurnar. Ég hafði hugsað þá við ljósbláar gallabuxur á Emanuel og kamelgula MOLO flíspeysu sem var keypt í Englabörnum fyrir jólin.

1620909_10152270431444579_642065414_n

Lófamál frá Tefélaginu. Fallegur tebolli sem fer vel í lófa. Fæst á heimasíðu Tefélagsins, Tefelagid.is

Sumir fara í Ríkið og eyða þúsundköllunum þar um helgar – svona kýs ég frekar að eyða mínum ;-)

LISA ELDRIDGE: NÁTTÚRULEGAR OG FALLEGAR AUGABRÚNIR

Skrifa Innlegg

10 Skilaboð

  1. Anna K

    8. February 2014

    Hvar fannstu þetta flotta nike dót á asos ? ég fæ bara upp ljót sólgleraugu og 3 pör af skóm :/

    • Ása Regins

      8. February 2014

      Farðu inn á fashionfinder.asos.com og skrifaðu nike þar og þá sérðu þetta :-)

  2. Hildur

    8. February 2014

    Kann samt ekki að meta að þú skrifar “til í bleiku fyrir stelpurnar”, þær mega nú alveg vera í þessum dökku líka. Og strákar í bleiku ef þeir vilja. Stakk mig í augun, varð að segja eitthvað.

    • Ása Regins

      8. February 2014

      Já ég veit það mæta vel, enda á strákurinn minn föt í öllum regnbogans litum og já, meðal annars bleik.
      Ég hef einmitt póstað myndum af honum í bleikum skóm hér á bloggið, þú getur séð færsluna hér: http://trendnet.is/asaregins/when-in-dubai/
      … þetta var bara skrifað því ég er oft beðin um að koma með ábendingar að “stelpufötum” því það eru einmitt líka til stelpur sem vilja ekki sjá neitt nema bleikt. Þetta fékk því að fljóta með svona, ekki verri meining á bakvið þetta en það :-)

  3. Auður

    8. February 2014

    jii mig langar svo í þetta vesti, sá það fyrst fyrir nokkrum mánuðum, varð alveg neongul í framan!

  4. Hafdis hinriks

    11. February 2014

    Hvar fekkstu bootsin Ása? Þau eru ÆÐI

    • Ása Regins

      11. February 2014

      Já mér finnst þau æðisleg. Hér er slóðin, en mér sýnist þau vera búin í bláu… æji..

      http://www.luisaviaroma.com/index.aspx?#ItemSrv.ashx|SeasonId=58I&CollectionId=0EY&ItemId=4&VendorColorId=Mg==&SeasonMemoCode=sale&GenderMemoCode=toddler-boys&Language=&CountryId=&SubLineMemoCode=shoes&CategoryId=0&ItemResponse=&MenuResponse=&SizeChart=false&ItemTag=true&NoContext=false