Það koma dagar þar sem ég tek internetrúntinn með stæl og hendi helling af dóti sem mig langar í í ósýnilegu, risa stóru og ótæmandi innkaupakerruna. Oftast gufa vörurnar svo bara upp og einhver annar fær að njóta þeirra en það á þó ekki við um þessar, í þetta skiptið.
Neongult vesti og ljósgráar hlaupabuxur frá Nike. Þetta er must have ! Asos.com
TOM FORD, Chanel, Dior eða aðrar fallegar bækur. Ég keypti mér TF á Amazon en ég hef séð að Myconceptstore.is er með glæsilegt úrval ljósmyndabóka.
Þá má einnig hafa í huga að veglegar ljósmyndabækur er dásamleg Valentínusargjöf fyrir bæði kyn. (HÆ EMIL ;-)
Þessi súper cool leður boots eru á leiðinni til okkar í pósti, einnig til ljósbleikir fyrir stelpurnar. Ég hafði hugsað þá við ljósbláar gallabuxur á Emanuel og kamelgula MOLO flíspeysu sem var keypt í Englabörnum fyrir jólin.
Lófamál frá Tefélaginu. Fallegur tebolli sem fer vel í lófa. Fæst á heimasíðu Tefélagsins, Tefelagid.is
Sumir fara í Ríkið og eyða þúsundköllunum þar um helgar – svona kýs ég frekar að eyða mínum ;-)
Skrifa Innlegg