HAMINGJUBROS
Sólin er uppskriftin af þessu hamingjubrosi…ég get svo svarið það!
Helgin mín er búin að vera hreint út sagt FRÁBÆR & ég vona að helgin ykkar hafi einnig verið frábær.
FöstudagsSÓL ? ? kallar á blómaskyrtu & BJÓR?
KAFFIVAGNINN – LUNCH
Á föstudaginn fór ég í hádegismat á kaffivagninum & ég fékk svo góðan mat að ég gæti mögulega mætt þangað næstu 6 daga líka.
EN að öðru . . . ég pantaði mér flug til Svíþjóðar & fer eftir 6 daga <3 ég get ekki beðið!
Næstum ÖLL plön eru breytt sem er nú enginn sjokker ef þið þekkið okkur Tómas, en meira um það síðar þegar ég veit meira.
KAFFIBRENNSLAN
Á föstudagskvöldið þá fórum við Helena vinkona & fengum okkur einn eða tvo á Kaffibrennslunni.
Kaffibrennslan hefur verið einn af mínum uppáhalds stöðum lengi. Það er eitthvað svo kosy við þennan stað að setjast niður í kaffi eða bjór í spil & spjall.
Laugardags BRUNCH <3
KJÓSIN
Kjósin – minn uppáhalds staður<3
Gott að enda helgina hér.
Gleðilegan mæðradag fallegu mömmur<3
Takk fyrir að lesa & eigðu gott kvöld kæri lesandi.
KNÚS,
Skrifa Innlegg