fbpx

NÆSTUM ÞVÍ TOPPUR

2022LÍFIÐ

KLIPPING

Áður en ég mætti í stólinn þá ætlaði ég bara að lita rétt í kringum andlitið til þess að birta aðeins til. En auðvitað varð ég að gera meira en það.

Á meðan Bogga litaði mig þá skoðaði ég pinterest til þess að fá inspo & hugmyndir …

Ég sýndi henni þessar myndir & pantaði mér topp takk fyrir.

Ég hef verið með ,,bangs” eins & þetta kallast en haldiði að ég hafi ekki bara klippt á mig næstum því topp. Aðeins styttra en ég hef gert áður.

ÓNÝTT HÁR

Ástæðan fyrir því að ég litaði bara fremst er af því að ég er að reyna að vera hörð við mig í þetta sinn. Ég vil lita mig minna svo ég fái fallega heilbrigt hár þar sem hárið mitt er eiginlega búið að vera ónýtt síðan ég kom heim úr heimsreisunni árið 2018. Ekki hjálpaði hárlosið eftir meðgönguna & svo þessi aflitun ofan á það … ég get varla safnað hári af því að það verður svo slitið. Þannig nú ætla ég að reyna að hætta að lita það en ég leyfi mér að lýsa í kringum andlitið. Ég er búin að segja við Boggu mína að hún megi alls ekki lita allt hárið þó ég biðji um það … sem ég er mjög líkleg til að gera. Ég er á fullu að hugsa vel um það & ótrúlegt en satt þá er þetta allt saman á réttri leið.

Ég gæti gert aðra færslu um hár rútínu & uppáhalds vörur ef það er áhugi fyrir því.

Það er alltaf gaman að breyta aðeins til.

ArnaPetra (undirskrift)

SKIPULEGGJUM OKKUR

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Elísabet Gunnars

    25. March 2022

    Æ ég eeelska – svo falleg og fallegt

    • Arna

      27. March 2022

      Takk mín KÆRA <3