Það var kominn tími á að gera eitthvað nýtt & skemmtilegt eftir næstum heilt ár með dökka rót & druslusnúð alla daga.
Ég var það sjúskuð að hún Bogga frænka hárgreiðslusnillingur var spenntari en nokkru sinni fyrr.
– FYRIR –
Eruð þið að sjá þessa RÓT? Ég sem hef alltaf verið ljóshærð en allt í einu orðin dökkhærð?
Bogga sagði að þetta gerist með aldrinum…gamlagamla ég ?
BÚMM stutthærð & spennt að verða blondína
Hér hafið þið lokaútkomuna…
– EFTIR –
Ég er svo ánægð með nýja hárið & það er líka svo gaman að breyta til. Núna held ég að ég eigi eftir að vera mikið duglegri að skella í allskonar hárgreiðslur þar sem ég næ ekki að skella í druslusnúðinn góða. Ég mæli mikið með því að prófa að breyta aðeins til þó það sé ekki nema klippa ogguponsu meira en seinast<3
Fylgist svo endilega með mér hér á Instagram:
@arnapetra
Takk fyrir að lesa & hafðu það gott kæri lesandi.
KNÚS,
Skrifa Innlegg