H verslun og L‘Oréal Paris sameinuðu krafta sína þegar þau buðu til heilsueflandi samveru í tilefni af útgáfu Telescopic Lift maskarans sem nú er kominn í sölu. Margar af powerskvísum landsins mættu á mottuna þegar einn vinsælasti þjálfari landsins Karitas María Lárusdóttir leiddi sveitta stuð stund í verslun, sem að þessu sinni var breytt í hóptímasal í tilefni viðburðarins. Gestir æfðu, hlóu, dönsuðu og svitnuðu saman í takt við frábæra tónlist – gleðin var allsráðandi sem endaði svo með hollri ská á H bar.
Ljósmyndarinn Aldís Pálsdóttir mundaði linsuna –
Þjálfarinn Karítas Lárusdóttir og Erna Hrund Hermannsdóttir, einn af skipuleggjundum viðburðarins
Einn tveir – áfram – til hliðar
Enginn fór tómhentur heim
Camilla er lýsandi dæmi um stemninguna sem myndaðist í salnum –
Thelma Guðmundsen og Gerða voru góðar á því
Sonja, Álfrún, Rósa og Andrea létu sig ekki vanta
Nike skóbúnaður, viðeigandi á viðburð sem þessum
Pattra tískudrottning mætti í réttum búnaði
Gleðin var við völd
Kolbrún Pálína og Erna Hrund
H Verslun flutti nýlega á Bíldshöfða 9 – glæsilegt risastórt rými sem varð að einstökum viðburð. Trendnet þakkar fyrir sig.
//
TRENDNÝTT
Skrifa Innlegg