Hafið þið prófað kaffi með tónik og lime? Þetta er svo ljúffeng og einföld blanda sem kemur mikið á óvart. Ég útbjó eina slíka uppskrift í samstarfi við Sjöstrand sem ég mæli með að þið prófið. Sumarlegur og afar frískandi drykkur. Það er spáð góðu veðri á höfuðborgarsvæðinu næstu daga og þá er tilvalið að skella í einn svona drykk.
Uppskrift gerir einn drykk
1-2 espresso skot Sjöstrand nr.1
1 ½ dl tónik vatn
4-6 klakar
1 limebátur
Aðferð
- Setjið klaka í glas og hellið tóniki ofan í.
- Útbúið 1-2 skot af espresso og hellið út í tónik vatnið.
- Kreystið safa úr limebáti. Skreytið með lime sneið og njótið.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ DAGSINS!♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg