ROTATE by Birger Christensen er danskt fatamerki sem sérhæfir sig í kjólum og samfestingum fyrir öll tilefni. Listrænir stjórnendur merkisins eru þær Thora Valdimars og Jeanette Madsen.
Þóra er íslensk búsett í Kaupmannahöfn en þær vinkonurnar eru á meðal áhrifamestu kvenna í tísku. Ef þú ert ekki að fylgja þeim á Instagram þá mæli ég með :)
ROTATE fæst nú í GK REYKJAVÍK og af því tilefni er blásið til veislu á morgun laugardag kl 17:00 í GK.
GDRN tekur lagið.
–
Saga sig sem er ein af hæfileikaríkustu ljósmyndurum landsins “ROTATE-aði” eða skipti um hlutverk og fór hinum megin við linsuna og sat fyrir. Saga er stórglæsileg þarna megin við myndavélina. Tinna Bergmann verslunarstýra GK smellti af á polaroid myndavél.
Sjáumst á morgun
xxx
Andrea
Instagram: @andreamagnus
Skrifa Innlegg