Myndlistarsýningin ’Hugarfar’ eftir Ella Egilsson opnaði í Norr11 síðastliðinn föstudag við frábærar viðtökur. Sýningin samanstendur af 16 nýjum olíumálverkum þar sem ímyndað íslenskt landslag er viðfangsefnið. Elli málaði þessa seríu á töluvert styttri tíma en hann vanalega gerir eða frá því 9.mars og þar til hann lagði lokahönd á síðustu strokurnar þann 29.júní. Alls lagði hann 892 klukkustundir í vinnu við öll 16 verkin.
Serían er unnin eftir ímynduðum myndformum íslenskrar náttúru, verkin eru máluð á draumkenndan hátt með heimagerðum olíulitum. Engir sérstakir staðir eru hafðir í huga og ekkert myndefni til að styðjast við, aðeins einfaldar skissur, rissaðar upp eftir minni með ímyndunaraflið að verki – virkilega vel heppnað!
Það var ljósmyndarinn Berglaug sem fangaði stemninguna hér að e
Sýningin ‘Hugarfar’ stendur yfir til 2.ágúst. Trendnet hvetur fólk til þess að fjölmenna á Hverfisgötuna. Meira: HÉR & HÉR
//
TRENDNET
Skrifa Innlegg