Ég er virkilega hrifin af íslenska fatahönnuðinum Elísabetu Karlsdóttir. Línan hennar STAND UP/ STAND OUT komst í úrslit í alþjóðlegu hönnunarkeppninni Remix í Mílanó en keppnin var haldin í samstarfi við Vogue talents. Línan er gerð í samstarfi við Eggert feldskera og verður hún sýnd á hönnunarmars í þeirri verslun á Skólavörðustíg 38 á fimmtudaginn 12 mars kl 17:00 , þið getið séð atburðinn HÉR
Ég er sérstaklega hrifin af jakkanum á þriðju myndinni..
hlakka til að sjá meira frá Elísabetu!
//Karin
Skrifa Innlegg