fbpx

TRENDNÝTT

Umhverfisvæn íslensk fatalína fæðist í Grikklandi

Halla Hákonardóttir og Helga Björg Kjerúlf eru hönnuðirnar á bakvið USEE STUDIO. Hönnunarstofan sendi nýverið frá sér fatalínuna Egaleo. Línan er framleidd í Grikklandi en þær stöllur eyddu hluta af síðasta sumri í Aþenu þar sem þær þróuðu og unnu að framleiðslu línunnar. Eins og fyrri verk USEE STUDIO er línan unnin út frá róttækum sjálfbærum sjónarmiðum, til að mynda er megin efniviður flíkanna gamlir efnalagerar og rekjanlegur lífrænn bómull. Hugmyndin að fatalínunni kom til í vinnuferð USEE STUDIO til Aþenu vorið 2018 en USEE STUDIO var í Aþenu í þeim tilgangi að vinna að samstarfsverkeni við gríska fatamerkð IT’S A SHIRT. Í ferðinni uppgötvaði stofan að Aþena hefur að geyma ríka textíl- og fata framleiðslusögu sem hefur orðið undir eftir að evrópsk framleiðsla fluttist að mestu til Suðaustur-Asíu vegna ódýrs vinnuafls þar. Miðborg Aþenu hefur að geyma mikið af gömlum rykföllnum efna- og fatalagerum sem standa óhreyfðir og í raun hálfgerð gullnáma.

Egaleo línan er nú þegar komin í sölu og hafa viðtökurnar verið vonum framar að sögn USEE STUDIO. Línunna má sjá á www.usee.is

//
TRENDNET

HAUSTIÐ FRÁ ACNE STUDIOS HEILLAR

Skrifa Innlegg