fbpx

TRENDNÝTT

Tulipop gefur Rauða krossinum skólasett fyrir börn flóttafólks á Íslandi

KYNNING

Íslenska hönnunarfyrirtækið Tulipop hópfjármagnaði nýju Tulipop bókina sína á vefsíðunni Kickstarter nýverið, en sú herferð gekk vonum framar.

 

Í herferðinni var hægt að styrkja útgáfu bókarinnar með því að velja kaup á svokölluðu „Góðgerðarsetti“ en fyrir hvert slíkt sett sem keypt var skuldbatt Tulipop sig til að gefa einu barni skólatösku og skólavörur í samstarfi við flóttamannaverkefni Rauða krossins á Íslandi. Í dag afhenti Tulipop 25 „skólasett“ til Rauða krossins og innifalið í hverju setti var skólataska, pennaveski, brúsi og nestisbox. Skólasettin munu fara í hendur 25 barna sem hefja skólagöngu hér á Íslandi í vor.

Berglind Rós Karlsdóttir hjá Rauða krossinum (t.h.) og Helga Árnadóttir hjá Tulipop (t.v).

Nánar um flóttamannaverkefniRauða krossins

Leiðsögumenn flóttafólks eru sjálfboðaliðar sem kynnast og aðstoða nýkomna einstaklinga eða fjölskyldu sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Íslandi. Allir sem fengið hafa alþjóðlega vernd á Íslandi er boðið að taka þátt í þessu verkefni.

Leiðsögumenn verða vinir þeirra nýkomnu, svara spurningum um lífið á Íslandi, æfa íslensku eða ensku, tala um íslenska menningu og/eða aðstoða við praktísk úrlausnarefni eins og atvinnuleit, skólaumsóknir og þýðingar bréfa sem berast á íslensku.

Markmið verkefnisins er sameiginleg aðlögun. Sjálfboðaliðarnir styðja fólks til sjálfstæðis í nýju landi með því að aðstoða þau við að nýta hæfileika sína og þau tækifæri sem eru fyrir hendi til að farnast vel á Íslandi. Þátttakendur eignast nýja vini, styrkja félagsnet sitt, öðlast nýja innsýn inn í íslenskt kerfi og læra um menningu, tungumál og hefðir hvers annars.
//
TRENDNET

20 ÁRA AFMÆLISARMBÖND KRAFTS TIL STYRKTAR UNGS FÓLKS MEÐ KRABBAMEIN

Skrifa Innlegg