fbpx

TRENDNÝTT

TÍSKUTÍMARITIÐ ENDURNÝTT LÍF

KYNNING

Rauði krossinn safnar fötum, flokkar þau og selur um allt land í 13 verslunum þar sem sjálfboðaliðar standa vaktina. Á höfuðborgarsvæðinu eru 5 verslanir þar sem hægt er að gera góð kaup fyrir bæði veskið og umhverfið auk þess að styðja við hjálpar- og mannúðarstarf Rauða krossins.

Búðirnar fagna nú útkomu tískutímaritsins Endurnýtt líf og slá til veislu í tilefni þess.

Um er að ræða tímarit stútfullt af tísku, fróðleik, viðtölum og gersemum sem kunna að leynast í Rauða kross búðunum. Blaðinu er ritstýrt af hinni mjög svo smekklegu Eddu Gunnlaugsdóttur, fyrrum tískuritstjóra Glamour á Íslandi.

 

 

Forsíðuna prýða Joey Christ og Alma Gytha.

MÆTUM og STYÐJUM við þetta umhverfisvæna góðgerðaverkefni.

HVAR: Rauðakrossbúðin við Hlemm
HVENÆR: Fimmtudaginn 10.október
KLUKKAN HVAÐ: 17-19
MEIRA: HÉR

 

Allur ágóði fataverkefnis Rauða krossins fer til stuðnings verkefna félagsins, hér heima sem og erlendis.
Fötin í blaðinu verða til sölu á viðburðinum auk annarra í svipuðum stíl, þá hefur verið þrykkt á poka og boli í takmörkuðu upplagi í tilefni viðburðarins.

Við hlökkum til!

 

//
TRENDNET

 

 

MASTERCLASS NÁMSKEIÐ Í FÖRÐUN

Skrifa Innlegg