Súkkulaðikokteill?
Ekki missa af Omnom Pop Up viðburði í verslun Geysis á Skólavörðustíg næstkomandi fimmtudagskvöld. Tilefnið er kynning á girnilegu vetrarsúkkulaði Omnom sem nýlega kom í sölu. Súkkulaðið er selt í fallegum gjafaröskjum sem Trendnet telur tilvalin kost undir jólatréð í ár. Gjafaöskjurnar verða að sjálfsögðu til sölu á viðburðinum og salan mun halda áfram fram yfir næstu helgi.
DJ Sunna Ben mun halda uppi góðri stemningu á meðan á gleðinni stendur og fyrstu 20 viðskiptavinirnir fá óvæntan glaðning frá Omnom.
Kynnist vetrarsúkkulaðinu hér að neðan – fallegt fyrir auga en líka ómótstæðilegt fyrir bragðlaukana.
Um vetrarlínu Omnom
Vetrarlína sækir innblástur sinn í íslenskar jólahefðir sem ylja landsmönnum um hjartarætur með minningum liðinna jóla. Omnom sækir innblástur í matarhefðir, bragðtóna og venjur sem hringja inn jólin.
Dark nibs + Raspberry
Madagaskar kakóbaunin á sérstakan stað hjá Omnom en hún er upphaf fyrirtækisins. Margslungnir, fíngerðir tónar og fislétt rauðberjabragðið gerir Madagaskar 66% súkkulaðið að einu stóru ástarævintýri fyrir bragðlaukana. Líkt og hefðin er á jólum, vildum við einnig klæða súkkulaðið okkar í sparifötin. Hátíðlega fagurrauð hindber með sinn sérstaka sæta keim, pöruð með vænlegu dassi af kakónibbum fullkomna pakkann.
Milk + Cookies
Það er ómögulegt að hugsa til jóla án þess að upp komi í hugann minning um glas af ískaldri mjólk og piparkökum. Omnom vildi fanga þessari minningu og leitaði því til Brauð&co með hjálp við að búa til hina fullkomu krydduðu smáköku. Grunnurinn var unninn úr afgangs möndlum úr framleiðslunni Omnom, tröllahöfrum og ríkulegu magni af engifer og kanil. Smákökurnar liggja í ljúfum faðmi Madagaskar mjólkursúkkulaðis og saman er þetta par ósigrandi.
Spiced White + Caramel
Malt og Appelsín. Kryddað, maltað hvítt súkkulaði með appelsínuberki, kanil og stökkri karamellu. Þessi blanda kemur öllum í jólafíling. Flestir Íslendingar halda fast í þessa ríkulegu hefð af hátíðlegri bragðupplifun, sem er engri lík. Þetta súkkulaði er óður Omnom til jólanna.
Sjáumst á fimmtudaginn !
HVAR: Skólavörðustíg 16
HVENÆR: Fimmtudaginn 28. nóvember
KLUKKAN HVAÐ: 17-19
MEIRA: HÉR
Psst.
Omnom Pop Up verður opið dagana 28. nóvember til 12. desember næstkomandi en vetrarlínan er einungis til í takmörkuðu upplagi.
Boðið verður upp á sérstakar kynningar á vetrarlínunni í verslun Geysis dagana:
30. nóvember milli 14-18
1. desember milli 14-18
7. desember milli 14-18
8. desember milli 14-18
//
TRENDNET
Skrifa Innlegg