fbpx

TRENDNÝTT

STÆRSTA BÍLABÍÓ Á ÍSLANDI UM HELGINA

KYNNING

Næstu helgi býðst frábær skemmtun á einu stærsta bílabíói sem haldið hefur verið á Íslandi á vegum  Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík RIFF. Fjögur kvöld og fjórar sýningar á risa skjá úti á Granda í alvöru bílabíó að amerískum sið. Tilvalin og örugg afþreying á þessum skrýtnu tímum sem við lifum á.

Meðal kvikmynda á dagskránni er eitt af þekktari verkum bandarískrar kvikmyndasögu Hair. Verkið ætti að vera flestum Íslendingum kunnugt enda verið sett á fjalirnar oftar en einu sinni með lagatextum í magnaðri þýðingu. Þessi sýning er á föstudagskvöldi 25. september. Fólk er hvatt til að mæta í búningum í anda myndarinnar, Reykjavík Street Food verður með matarvagna á svæðinu og ýmsar óvæntar uppákomur í bígerð.

Á dagskrá verða einnig:

Ég er Gréta / I am Greta

 Heimildarmynd um hinn unga aðgerðarsinna Gretu Thunberg berst beinst á RIFF frá Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Um er að ræða persónulega heimildarmynd í leikstjórn sænska leikstjórans Nathan Grossman þar sem saga Gretu er rakin á hrífandi hátt frá upphafi baráttu hennar. Í myndinni fá áhorfendur innsýn í baráttu Gretu þar sem hún hittir ýmsa leiðtoga heims, skipuleggur fjöldamótmæli og undibýr ræðuhöld. Auk þess að kynnast hennar persónulegu högum og daglega lífi og því hvernig hún tekst á við mikið álag, endalaus ferðalög, gagnrýni almennings og það að vera orðin andlit baráttunnar gegn loftslagsbreytingum.

Hunskastu út/Get the Hell Out

Hunskastu út kemur hingað frá  heimsfrumsýningu á Toronto kvikmyndahátíðinni  einni stærstu hátíð í heimi en þetta fyrsta kvikmynd leikstjórans Wang I-Fan í fullri lengd. Hér er á ferðinni alvöru hryllingsmynd  í anda Covid19 um mann sem reynist sá eini á vinnustað sínum sem er ónæmur fyrir banvænum vírus er breytir fólki í uppvakninga.

Sputnik

Þessi mynd er uppáhald dagskrárstjórans Frédéric Boyer og frumraun leikstjórans Egor Abramenko á þessu sviði. Hrollvekjandispennumynd sem gerist á hátindi kalda stríðsins. Áætlað var að frumsýna myndina á Tribeca hátíðinni í apríl síðastliðinum en hún er nú komin út í Rússalandi og hefur hlotið góða dóma meðal gagnrýnenda. Hér segir af leiðangursstjóra sóvesks geimskips sem kemst einn lífs af eftir misheppnaðan leiðangur. Í kjölfar þessað þekktur rússneskur sálfræðingur er fenginn til að meta andlega heilsu leiðangursstjórans verður ljóst að eitthvað hættulegt gæti hafa fylgt honum aftur til jarðar.

 Sýnd verður ein kvikmynd á kvöldi og hefst sýning klukkan 21.  Miðasala í Bílabíó RIFF er hafin á www.riff.is. 2.990 kr á bíl.

Sjáumst í bílabíó!

// TRENDNÝTT

Helmut Newton dansar báðum megin við línuna

Skrifa Innlegg