fbpx

TRENDNÝTT

KLÆDDUST EINS Í ÁTAKANLEGUM VIÐTÖLUM

FÓLK

Það hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum, viðtalið sem flestir hafa skoðun á, þegar Meghan og Harry settust niður með Oprah Winfrey á dögunum. Samkvæmt viðtalinu þá leið Meghan ekki vel innan konungsfjölskyldunnar og mætti mikilli gagnrýni, fyrir húðlit sinn meðal annars. Á tímabili leið henni það illa að hún hugaði taka sitt eigið líf. Elísabet Englandsdrottning hefur tjáð sig eftir viðtalið og segist miður sín yfir þessum upplýsingum.

Vogue vakti athygli á tveimur myndum sem teknar voru af Diönu prinsessu annars vegar og Meghan Markle hins vegar. Þó það séu 26 ár á milli myndanna þá eru þær báðar teknar á sambærilegu augnabliki í lífi kvennanna – þegar erfið viðtöl áttu sér stað. Sú fyrri þegar Diana ræddi erfiðleika sína innan fjölskyldunnar við blaðamann í Lundúnum og sú síðari þegar Meghan opnaði sig um vanlíðan í Kaliforníu.

Trendnet telur þetta fataval ólíklega vera tilviljun 🖤

//
TRENDNET

TOPP 10 Á TAXFREE FRÁ VIÐSKIPTAVINUM

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Ella

    11. March 2021

    Þessi mynd af Meghan Markle er ekki ný, líklega síðan árið 2017.