fbpx

TRENDNÝTT

ÍSLENSKIR HÖNNUÐIR OPNA NÝJAR DYR

FÓLK

Íslensku fatahönnuðirnir Magnea Einarsdóttir og Anita Hirlekar hafa verið samferða um nokkurt skeið. Þær ráku vinnustofu saman í Garðastræti um tíma en hafa nú fært sig um setur að Sundaborg 5. Í dag opna þær nýjar dyr fyrir viðskiptavini með dýrindis konfekt og sódavatn að skála í – allir velkomnir, eins og segir í tilkynningu.

HVAR: SUNDABORG 5, 104 Reykjavík
HVENÆR: 12.nóvember
KLUKKAN HVAÐ: 12-18

*Opið verður alla þriðjudaga frá 12-18 í vetur ..

Trendnet mælir alltaf með íslenskri hönnun og hvetjum fólk til að kynnast þessum tveimur hönnuðum betur.

//
TRENDNET

JÓLIN Í BODY SHOP - DREAM BIG!

Skrifa Innlegg