fbpx

TRENDNÝTT

HÖNNUNARMARS Í JÚNÍ 2020!

Eins og nafnið gefur sterklega til kynna þá er stærsta hönnunarhátið Íslendinga, Hönnunarmars, haldin í mars mánuði ár hvert. Það verður þó breyting á í ár og verður hátíðin haldin í lok júní – Hönnunarjúní 2020.

Tilkynning frá Hönnunarmiðstöð Íslands:

Í ljósi fordæmalausra aðstæðna hefur stjórn og stjórnendur HönnunarMars ákveðið að færa hátíðina fram í lok júní. Ákvörðunin er tekin að vel ígrunduðu máli og í nánu samtali við þátttakendur og samstarfsaðila.

Það er forgangsatriði að allir leggist á eitt við að hefta frekari útbreiðslu veirunnar sem nú herjar á samfélagið.

HönnunarMars er 12 ára hátíð sem fæddist í miðju hruni og hefur því frá upphafi verið boðberi bjartsýni, nýsköpunar og nýrra leiða. Hann mun því koma inn með krafti, veita innblástur, gleði og varpa ljós á kraumandi skapandi kraft hönnunarsamfélagsins hér á landi.

Það eru bjartari tímar framundan, mætum tvíelfd til leiks með hækkandi sól!

Frekari upplýsingar er að vænta síðar.

Við hlökkum til að mæta í sumar!
//TRENDNET

SJÁLFBÆR TÍSKA - 3 GÓÐ RÁÐ VIÐ TÍSKUKAUP

Skrifa Innlegg