… heillandi ævintýraþrá sveipuð glamúr.
Í dag sviptir H&M hulunni af nýjustu Studio línunni fyrir vor/sumar 2019 sem ber heitið „Lúxusferðalangurinn.” Stílisti línunnar er Géraldine Saglio og ljósmyndarinn Lachlan Bailey skaut herferðina Arizona.
Hingað til hefur Studio vorlínan verið sýnd á tískuvikunni í París en í ár verður línan, sem er innblásin af ævintýraþrá, frumsýnd í hinni kyngimögnuðu eyðimörk Sedona í Arizona. Hægt verður að fylgjast með þegar hulunni er svipt af línunni á #HMSTUDIO en línan fer svo í sölu í útvöldum H&M verslunum, þar á meðal í H&M Smáralind þann 21. mars.
H&M Studio línan kallar á lúxusferðalangann sem er með ólæknandi ævintýraþrá. Við hönnuðum línuna með konu í huga sem setur sér engin takmörk. Hún dansar uppá borðum fram á rauða nótt íklædd pallíettupilsi, en er svo mætt í jóga eldsnemma og kjarnar sig í silfurröndóttum æfingarbuxum. Okkur þykir einstaklega gaman að kynna línuna í náttúruparadísinni Sedona sem smellpassar við línuna og heildarútlitið. Pernilla Wohlfahrt, yfirumsjón með hönnunardeild H&M. |
Við teljum niður í þessa fegurð. Vel gert H&M Studio.
//
TRENDNET
Skrifa Innlegg