Níunda tölublað HA, rit um íslenska hönnun og arkitektúr sem Hönnunarmiðstöð Íslands gefur út tvisvar ári, er komið út! Ritstjórn HA – María Rán Guðjónsdóttir, Garðar Snæbjörnsson, Þorleifur Gunnar Gíslason og María Kristín Jónsdóttir, ritstjóri HA í útgáfugleðinni sem fór fram á Hafnartorgi beint í kjölfarið á ársfundi Hönnunarmiðstöðvar Íslands. Myndir: Eyþór Árnason.
Í þessu níunda tölublaði, sem er í glænýju útliti eftir hönnunarteymið StudioStudio, er meðal annars skyggnst inn í heim hönnunar, matar og hnattvæðingar í gegnum verkefnið Banana Story eftir Johönnu Seelemann og Björn Steinar Blumenstein, arkitektarnir Bergur Finnbogason hjá CCP og Space Popular færa lesendur inn í heim sýndar- og viðbætts veruleika og framtíðarfræðingurinn Helga Jósepsdóttir segir frá því hvernig hægt sé að hanna framtíðina. Gunnar Vilhjálmsson og Kalapi Gajjar-Bordawekar hjá letursmiðjunni Universal Thirst segja frá indverskri og arabískri týpógrafíu, fata- og textílhönnuðurinn Helga Lára Halldórsdóttir útskýrir hvernig það sem hún kallar „rýmisgreind vandræðaleikans“ varð að fatalínu. Þá deilir Philip Fimmano tísku- og lífsstílssérfræðingur hugleiðingum sínum, leirlistakonan og hönnuðurinn Kristín Sigfríður Garðarsdóttir segir frá ferlinu bakvið nýafstaðna einkasýningu sína í Hafnarborg og arkitektinn Rafael Pinho skrifar um krosslímt timbur (KLT) og möguleika í íslenskri skógrækt.
Trendnet mælir með að lesendur tryggja sér eintak!
// |
Skrifa Innlegg