Það er orðið hefð hjá okkur á Trendnet að hittast fyrstu dagana á nýju ári til að stilla saman strengi. Þetta skiptið var það Flatey sem tók heldur betur vel á móti okkur.
Flatey pizzuna þekkja líklega flestir en þeir eru búnir að taka pizzuleikinn á nýtt level þar sem hægt er að fara út að borða í huggulegu umhverfi fyrir sanngjarnt verð. Þetta er því kjörinn staður fyrir hópa að hittast því nú eru þeir byrjaðir að taka borðapantanir fyrir hópa (8 eða fleiri) – HÉR.
Við sátum niðri í stemningunni en nýlega opnaði barinn þeirra á efri hæðinni þar sem hópar hafa færi á að vera í aðeins meira einrúmi.
Við áttum frábæra kvöldstund og þökkum kærlega fyrir okkur!
Fyrir ykkur sem ekki hafið smakkað – þá finnið þið Flatey útá Granda og í Mathöllinni á Hlemmi.
//
TRENDNET
Skrifa Innlegg