Á ári hverju velur Pantone Color Institute lit ársins og hefur valið mikil áhrif á tísku og hönnunariðnaðinn. Eftir bleikan, fjólubláan og ferskjulitaðan þá spáir WGSN (World’s Global Style Network) því að litur ársins 2020 verði nýr pastel litur – NEO MINT.
Samkvæmt trend-sérfræðingum þá er valið á myntu grænum komið til þar sem liturinn sameinar náttúruna við tækni og vísindi – málefni sem eru í miðpunkti í sambandi við þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í loftlagsmálum.
Þá er talað um að þessi ferski litur sé ekki kyndbundinn (e. gender-neutral). Liturinn er nú þegar orðinn nokkuð áberandi í tísku og hönnunarheiminum.
Mun þessi myntugræni litur fá pláss í þínum fataskáp árið 2020?
Eða inná heimilið?
//TRENDNÝTT
Skrifa Innlegg